Ljósmyndasafn
Forsíða Ljósmyndir Nýjar myndir Um safnið Efst á baugi Hafa samband
og/eða og/eða

Ljósmyndasafn Borgarfjarðar
Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar hefur að undanförnu unnið að því að koma upp ljósmyndasíðu fyrir ljósmyndasafn sitt. Nú er þessi draumur okkar orðinn að veruleika ekki hvað síst vegna tilverknaðar Þjóðhátíðarsjóðs sem styrkti vinnu við skönnun á gömlum myndum og vegna Jóhanns Ísbergs sem hannaði ljósmyndavefinn. Héraðsskjalasafnið á í fórum sínum þúsundir ljósmynda af Borgfirðingum og myndir úr Borgarfirði, sem eru teknar á ýmsum tímum, sumar mjög gamlar. Nú þegar eru komnar um 1300 myndir á vefinn og mun þeim fjölga á næstu vikum og mánuðum, auk þess sem þær verða skráðar. Ég vona að Borgfirðingar og aðrir áhugamenn taki þessu framtaki okkar vel og njóti þessa að skoða myndirnar. Ef þið hafið einhverjar spurningar varðandi vefinn, þá endilega sendið línu á netfangið: skjalasafn@safnahus.is eða hringið í mig í síma 430 7200 - Jóhanna Skúladóttir


Nýjar myndir

Hinn guðdómlegi gleðileikur um fæðingu Jesú Krists

Hinn guðdómlegi gleðileikur um fæðingu Jesú Krists

Hinn guðdómlegi gleðileikur um fæðingu Jesú Krists

Hinn guðdómlegi gleðileikur um fæðingu Jesú Krists
Skoða nýjar myndir >>

Eitt og annað
Borgarfjörður 26. ágúst 2008
Safnahús Borgarfjarðar - Bjarnarbraut 4-6 - 310 Borgarnesi - S: 430-7200 - Fax: 430-7209 - Netfang: safnahus@safnahus.is